Kemur okkur ekkert á óvart

Una Rós Unnarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild.
Una Rós Unnarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Una Rós Unn­ars­dótt­ir gerði fyrra mark Fram er liðið sigraði Val, 2:1, í Bestu deild­inni í fót­bolta í dag. Val­ur var með 1:0 for­ystu í hálfleik en Fram­ar­ar voru sterk­ari í seinni hálfleik.

„Við kom­um ákveðnar út í seinni hálfleik­inn. Fyrri hálfleik­ur­inn var of soft hjá okk­ur. Við spiluðum samt ágæt­lega en það vantaði síðustu send­ing­una.

Í seinni hálfleik vor­um við ákveðnari og pressuðum þær meira. Manni leið miklu bet­ur í seinni hálfleik. Við vor­um til­bún­ari þá. Kannski var þetta ein­hver hræðsla í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik þá stíg­um við á þær,“ sagði Una um leik­inn við mbl.is.

Fram er nýliði í deild­inni en þrátt fyr­ir það kom sig­ur­inn í dag Unu ekki á óvart en Fram er nú með sex stig­um meira en Val­ur.

Frá leiknum í dag.
Frá leikn­um í dag. mbl.is/Ó​laf­ur Árdal

„Það er mjög sterkt að vinna hér en við erum með mjög gott lið. Þetta kem­ur okk­ur ekk­ert á óvart, þótt þetta komi kannski öðrum á óvart. Okk­ur finnst þetta venju­legt, þótt þetta sé það kannski ekki.“

Fram hef­ur verið á mik­illi sigl­ingu und­an­farn­ar vik­ur, eft­ir hæga byrj­un á mót­inu. Liðið er með fimm sigra í síðustu sex leikj­um.

„Mér fannst við ekki það slæm­ar í fyrstu leikj­un­um. Þeir voru á móti liðunum sem eru núna í þrem­ur efstu sæt­un­um. Það er spenn­ing­ur í byrj­un og það var ef­laust eitt­hvað stress. Við erum ekki með mestu reynsl­una en við erum með get­una til að vera í þess­ari deild,“ sagði hún.

En hvernig er að skora fyrsta markið í efstu deild?

„Til­finn­ing­in er góð. Það skipt­ir ekki hver skor­ar mörk­in. Ég var úti á kanti og ég sá pláss fyr­ir aft­an hana og komst fram­hjá henni. Ég ætlaði að koma með hættu­leg­an bolta inn og hann endaði inni,“ sagði Una.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert