Mér fannst þetta vera brot

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Vestri fékk KA í heim­sókn í 11. um­ferð Bestu deild­ar karla í knatt­spyrnu á Ísaf­irði í dag. Leik­ur­inn fór 1:0 fyr­ir heima­menn í blíðskap­ar­veðri. Hall­grím­ur Jónas­son þjálf­ari KA mætti í viðtal eft­ir leik og var spurður um fyrstu viðbrögð eft­ir leik.

„Ég er mjög svekkt­ur og mjög reiður yfir því að hafa tapað þess­um leik, þetta er ekki leik­ur sem við eig­um að tapa. Mér finnst við ekki gera al­veg nógu vel í fyrri hálfleik. Markið sem þeir skora er að ég held auka­spyrna, brjóta á Hall­grími Mar og ekk­ert dæmt, fara upp og skora. Mér finnst við í seinni hálfleik gjör­sam­lega liggja á þeim og fá marg­ar góðar stöður, en inn vildi bolt­inn ekki.“

10 mín­út­um fyr­ir markið hjá Vestra voruð þið að ná góðum tök­um á leikn­um og markið kom dá­lítið óvænt, sló það ykk­ur út af lag­inu?

„Nei, Vestri eru bara erfiðir þegar þeir kom­ast yfir, þeir liggja aft­ar­lega og gera það vel. Ég var bara svekkt­ur með þetta mark. Þeir voru ekki einu sinni með bolt­ann og mér fannst þetta brot, ekk­ert dæmt. Já, furðuleg­ar ákv­arðanir með brot og gul spjöld þarna í fyrri hálfleik á báða bóga. Ég var ekki al­veg að átta mig á þessu.“

Ertu sátt­ur með seinni hálfleik­inn, þið spiluðuð vel en vantaði bara þetta mark?

„Við vor­um góðir úti á vell­in­um og það er erfitt að skora á Vestra og þeir gera þetta vel og eru góðir þegar þeir kom­ast yfir á heima­velli. Mér fannst við skapa rosa­lega marg­ar stöður og á síðasta and­ar­tak­inu á Birg­ir skalla yfir þegar markmaður­inn gríp­ur í tómt. Við sköp­um stöður, fáum auka­spyrn­ur og horn­spyrn­ur sem voru hræðileg­ar, en gerðum það ekki nógu vel. Fín­asti leik­ur en ég er ósátt­ur með niður­stöðuna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert