Veit varla hvar við erum í töflunni

Davíð Smári Lamude þjálfari Vestra.
Davíð Smári Lamude þjálfari Vestra. mbl.is/Óttar Geirsson

Vestri fékk KA í heim­sókn í 11. um­ferð Bestu deild­ar karla í knatt­spyrnu á Ísaf­irði í dag. Leik­ur­inn fór 1:0 fyr­ir heima­menn í blíðskap­ar­veðri. Davíð Smári þjálf­ari Vestra mætti í viðtal eft­ir leik og var spurður hvort hann væri ekki sátt­ur með úr­slit­in.

„Jú, ég er mjög sátt­ur með úr­slit­in. Sér­stak­ur leik­ur, mér fannst við vera ofan á á öll­um sviðum hérna í fyrri hálfleik. Við fór­um inn í hálfleik­inn og ætluðum að skerpa aðeins á okk­ur og reyna að verða aðeins betri á bolt­an­um, það kom síðan ekk­ert út úr því í seinni hálfleik. Hins veg­ar fannst mér við fá bestu fær­in bæði í fyrri og seinni hálfleik, Gunn­ar fær nátt­úru­lega frá­bært færi hérna í fyrri hálfleik sem hann klár­ar ekki. Daði fær nokkr­ar mjög góðar stöður hérna og bara leiðin­legt að ná ekki að skora fleiri mörk. En frek­ar óþægi­leg­ur seinni hálfleik­ur, skal viður­kenna það.“

KA spilaði vel í seinni, en eru það ekki úr­slit­in sem skipta máli hérna í dag? Með sigr­in­um stimplið þið ykk­ur dá­lítið aft­ur frá pakk­an­um við botn­inn.

„Botn­in­um, veit það ekki hvort 4. sætið sé það. Við hugs­um bara einn leik í einu og við erum ekki svo mikið að spá í töfl­unni. Ég veit varla hvar við erum í henni núna, hvað þá fyr­ir leik­inn. Á móti kem­ur er leik­ur­inn í dag var mik­il spenna í hon­um og við vor­um aðeins und­ir í ná­vígj­un­um á köfl­um í seinni hálfleikn­um. Ég er ekki sátt­ur við það og heilt yfir ekk­ert sátt­ur við seinni hálfleik­inn. Síðan liðinu mínu til varn­ar þá líður okk­ur gríðarlega vel með bolt­ann fyr­ir fram­an okk­ur, við erum kannski full værukær­ir í því að líða vel að verj­ast. Heilt yfir fannst mér KA ekki skapa sér nein hrein færi í leikn­um. Eitt­hvað kl­afs inni í teig og reyna að sparka bolt­an­um yfir okk­ur og fá djúp hlaup sem við viss­um svo sem fyr­ir leik. Mér fannst við díla bara vel við það.“

Nú eru það ná­grann­ar KA, Þór, sem mæta hérna næst og nú er sæti í undanúr­slit­um í bik­ar í boði, ertu ekki bjart­sýnn á það?

„Jú en það er erfiður leik­ur, sér­stak­lega kom­andi úr svona leik, við ger­um okk­ur grein fyr­ir því. Við rædd­um það strax inni í klefa að við þyrft­um að næra okk­ur vel og vera klár­ir í þann leik. Við vit­um al­veg hvernig þetta Þórslið er og það verður spenn­andi leik­ur og verður gam­an að fá þá hingað heim.“

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert