Breiðablik í toppsætið

Birta Georgsdóttir kemur Breiðabliki yfir í dag.
Birta Georgsdóttir kemur Breiðabliki yfir í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Breiðabliks­kon­ur eru komn­ar á topp Bestu-deild­ar kvenna í knatt­spyrnu eft­ir góðan 2:0-sig­ur á Þór/​KA í dag. Leikið var í Bog­an­um á Ak­ur­eyri og var leik­ur­inn í 9. um­ferð deild­ar­inn­ar.

Hefðbund­in deild­ar­keppni er nú hálfnuð og er Breiðablik með 22 stig ásamt Þrótti og FH en Þór/​KA er í 4. sæti með 15 stig. Blika­kon­ur sitja í topp­sæt­inu vegna yf­ir­burðar marka­tölu en þær hafa skorað 37 mörk og eiga haug af mörk­um á Þrótt og FH.

Blika­kon­ur byrjuðu leik­inn af fít­onskrafti og hrein­lega linntu ekki lát­um fyrr en þær skoruðu. Birta Georgs­dótt­ir stakk sér í gegn um vörn Þórs/​KA á 15. mín­útu og af­greiddi bolt­ann ör­ugg­lega í markið. Áður hafði hún klúðrað al­gjöru dauðafæri. Leik­menn Þórs/​KA áttu í miklu basli í fyrri hluta fyrri hálfleiks. Supu áhorf­end­ur hvelj­ur og jesúsuðu sig á víxl þegar Blika­kon­ur hirtu af þeim bolt­ann ít­rekað nærri marki Þórs/​KA.

Loks þegar heima­kon­ur voru farn­ar að kom­ast fram­ar á völl­inn og bíta aðeins frá sér þá bætti Birta við öðru marki. Fékk hún bolt­ann óáreitt í miðjum víta­teign­um og aft­ur sýndi hún yf­ir­veg­un og setti bolt­ann ör­ugg­lega í vinstra mark­hornið. Markið kom á 35. mín­útu.

Nokkuð jafn­ræði var með liðunum eft­ir þetta mark en heima­kon­ur klúðruðu full mörg­um upp­hlaup­um með því að fá dæmda á sig rang­stöðu. Blika­kon­ur höfðu gert sig sek­ar um það sama þegar sókn­arþungi þeirra var sem mest­ur fyrri hluta hálfleiks­ins.

Má segja að seinni hálfleik­ur­inn hafi verið í jafn­vægi. Blikar sóttu meira og voru beitt­ari en heima­kon­ur tóku nokkr­ar risp­ur og ógnuðu inn á milli. Vörn Blika var þétt og sköpuðu heima­kon­ur eng­in al­vöru færi lengst­um. Það var Breiðablik sem var nær því að skora þriðja mark sitt en Þór/​KA að minnka mun­inn.

Á lokakafl­an­um fóru leik­menn Þórs/​KA loks að þjarma aðeins að Blik­un­um en flest skot þeirra voru stöðvuð af þétt­um varn­ar­múr Breiðabliks. Í upp­bóta­tíma átti Sandra María Jessen svo skot í slá en skömmu síðar var flautað til leiks­loka.

Blika­kon­ur voru virki­lega beitt­ar fyrsta hálf­tím­ann og skilaði grimmd þeirra og snerpa nokkr­um góðum fær­um. Sam­an­tha Smith gerði oft usla og var hún hættu­leg­asti leikmaður Breiðabliks.

Heima­kon­ur virkuðu taugatrekkt­ar þegar pressa Breiðabliks var sem mest. Þær misstu marga bolta frá sér eða spiluðu langt til baka til þess eins að þruma bolt­an­um sem lengst frá marki sínu. Aðeins Kimber­ly Dóra Hjálm­ars­dótt­ir virt­ist til­bú­in í al­vöru hama­gang og bar­áttu. Hún var lang­best í liði Þórs/​KA, vann mikið af bolt­um og spilaði óhikað fram á við.

Lýs­ing upp­fær­ist sjálf­krafa

All­ar lýs­ing­ar í beinni

Þór/​KA 0:2 Breiðablik opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert