Ótrúlegur viðsnúningur í Kaplakrika

Hrafnhildur Salka Pálmadóttir og Katherine Pettet sækja að Ídu Marín …
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir og Katherine Pettet sækja að Ídu Marín Hermannsdóttur í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Ída Marín Her­manns­dótt­ir átti stór­leik fyr­ir FH þegar liðið tók á móti Tinda­stóli í 9. um­ferð Bestu deild­ar kvenna í fót­bolta á Kaplakrika­velli í Hafnar­f­irði í kvöld. Leikn­um lauk með stór­sigri FH, 5:1, en Ída Marín gerði sér lítið fyr­ir og skoraði þrennu í leikn­um.

FH fer með sigr­in­um upp í annað sæti deild­ar­inn­ar og í 22 stig, líkt og topplið Breiðabliks og Þrótt­ur úr Reykja­vík sem er í þriðja sæt­inu, en Tinda­stóll er í ní­unda og næst­neðsta sæt­inu með 7 stig.

Makala Woods kom Tinda­stól yfir strax á 28. mín­útu eft­ir mik­inn vand­ræðagang í vörn FH. Sandra Sig­urðardótt­ir í marki Hafn­f­irðinga  reyndi þá að sóla Woods og Elísu Bríeti Björns­dótt­ir en Woods vann bolt­ann af henni og skoraði í tómt markið.

Tinda­stóll var sterk­ari aðil­inn í fyrri hálfleik og fékk nokk­ur góð tæki­færi til þess að bæta við fleiri mörk­um en inn vildi bolt­inn ekki og staðan því 1:0 í hálfleik, Tinda­stól í vil.

Viðsnún­ing­ur í seinni hálfleik

Hafn­f­irðing­ar byrjuðu síðari hálfleik­inn af mikl­um krafti og Birna Krist­ín Björns­dótt­ir jafnaði met­in fyr­ir FH á 47. mín­útu með föstu skoti úr teign­um eft­ir að Genevieve Crens­haw í marki Tinda­stóls hafði slegið fyr­ir­gjöf Thelmu Kar­en­ar Pálma­dótt­ur út í teig­inn.

Ída Marín Her­manns­dótt­ir kom FH yfir á 55. mín­útu með föstu skoti úr teign­um eft­ir frá­bæra fyr­ir­gjöf MauyHan­sen en Crens­haw í mark­inu réð ekki við skotið.

Maya Han­sen bætti svo við þriðja marki FH á 67. mín­útu þegar hún slapp ein í gegn­um vörn Tinda­stóls. Hún fór illa með Bryn­dísi Rut Har­alds­dótt­ur áður en hún þrumaði bolt­an­um milli fóta Crens­haw í mark­inu.

Ída Marín bætti svo við fjórða mark­inu á 72. mín­útu þegar Han­sen sendi hana í gegn Crens­haw kom út úr mark­inu og freistaði þess að loka á hana en Ída átti lúmskt skot sem lak í netið eft­ir að María Dögg Jó­hann­es­dótt­ir, varn­ar­maður Tinda­stóls, hafði reynt sitt besta til þess að koma bolt­an­um frá marki.

Ída Marín var ekki hætt og hún full­komnaði þrenn­una á 83. mín­útu þegar Ingi­björg Magnús­dótt­ir átti frá­bæra fyr­ir­gjöf frá vinstri. Ída Marín kom á ferðinni og þrumaði bolt­an­um með viðstöðulausu skoti á lofti úr teign­um og staðan orðin 5:1.

FH tek­ur á móti Val í næstu um­ferð, þann 21. júní á meðan Tinda­stóll heim­sæk­ir nýliða FHL þann 20. júní.

Lýs­ing upp­fær­ist sjálf­krafa

All­ar lýs­ing­ar í beinni

FH 5:1 Tinda­stóll opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert