„Gáfum engin grið“

Edda Garðarsdóttir og Nik Chamberlain á hliðarlínunni í kvöld.
Edda Garðarsdóttir og Nik Chamberlain á hliðarlínunni í kvöld. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Hinn geðþekki Eng­lend­ing­ur Nik Cham­berlain, þjálf­ari kvennaliðs Breiðabliks í Bestu deild kvenna í knatt­spyrnu, var hæst­ánægður eft­ir 2:0 sig­ur Breiðabliks á Þór/​KA í dag.

Sig­ur­inn kom Blika­kon­um á topp­inn en FH og Þrótt­ur eru með jafn mörg stig og Breiðablik. Liðin þrjú hafa stungið af í deild­inni og munu sjálfsagt berj­ast um Íslands­meist­ara­titil­inn eitt­hvað fram á haustið.

Nik kom í stutt spjall eft­ir leik og hrósaði leik­mönn­um sín­um í há­stert.

„Við spiluðum mjög vel. Þetta var ekki eins og við ger­um venju­lega en við náðum að spila í svæði og opna vel á stungu­send­ing­ar og kant­ana. Ég var þó mest ánægður með varn­ar­vinn­una okk­ar, hvernig við brut­um allt niður og unn­um bolta fljótt aft­ur eft­ir að hafa misst hann til Þórs/​KA.

Í raun fannst mér Þór/​KA ekki skapa nein al­vöru færi. Sandra María náði skoti í slána í blá­lok­in en okk­ur tókst virki­lega vel að loka á hana og sam­herja henn­ar. Mér fannst frammistaðan í dag heil­steypt og góð.“

Þið byrjuðuð með mikl­um krafti og virt­ust ætla að hlaupa yfir heima­kon­ur fyrstu tutt­ugu mín­út­urn­ar.

„Hár­rétt. Við kom­um inn með hátt orku­stig og mik­inn kraft. Fyrsti hálf­tím­inn hjá okk­ur var frá­bær hvað þetta varðar. Við stjórnuðum þessu al­gjör­lega. Við vor­um hættu­leg­ar, sköpuðum góð færi og gáf­um eng­in grið.

Liðið fær hrós fyr­ir að mæta svona grimmt til leiks. Við hefðum sjálfsagt getað sýnt meiri þol­in­mæði á köfl­um en þetta skilaði tveim­ur mörk­um og góðum sigri á góðu liði,“ sagði stolt­ur kapp­inn að lok­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert