Þeir hafa enga ástæðu til að kvarta

Gunnar Vatnhamar, númer sex, í baráttunni í kvöld.
Gunnar Vatnhamar, númer sex, í baráttunni í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Gunn­ar Vatn­ham­ar, fær­eyski varn­ar­maður­inn í liði Vík­ings úr Reykja­vík, var kát­ur er hann ræddi við mbl.is í kvöld enda ný­bú­inn að skora sig­ur­mark liðsins gegn KR en Vík­ing­ur sigraði KR-inga 3:2 í Reykja­vík­urslag í kvöld.

„Þetta var skemmti­leg­ur leik­ur en á sama tíma erfiður leik­ur. Bæði lið gáfu allt í þetta og sem bet­ur fer nýtt­um við okk­ar færi bet­ur,“ sagði Gunn­ar. Markið hans kom eft­ir horn frá Gylfa Þór Sig­urðssyni.

„Þetta var gott horn hjá Gylfa og ég var rétt­ur maður á rétt­um stað. Ég þurfti bara að ráðast á bolt­ann og sem bet­ur fer fór hann inn,“ sagði hann.

Staðan í hálfleik var 2:2 eft­ir stór­skemmti­leg­an fyrri hálfleik en seinni hálfleik­ur­inn var ró­legri.

„Þetta var upp og niður í fyrri hálfleik. Liðin skipt­ust á að vera með stjórn. Svo­leiðis er þetta stund­um, þeir spiluðu líka vel. Í seinni hálfleik vor­um við með betri stjórn á leikn­um.“

KR skoraði fyrra markið sitt úr víti eft­ir að Karl Friðleif­ur Gunn­ars­son hand­lék bolt­ann inn í teig og kom í veg fyr­ir mark. Karl slapp með gult spjald.

„Það var hendi en ég mér fannst hann ekki fara vilj­andi með hönd­ina í bolt­ann. Hann teygði ekki hönd­ina út og var óhepp­inn. Þeir fengu víti, gult spjald og mark og hafa enga ástæðu til að kvarta.“

Vík­ing­ur náði eins stig for­skoti á Breiðablik með sigr­in­um í kvöld og stefn­ir í æsispenn­andi topp­bar­áttu.

„Þetta er spenn­andi. Það er skemmti­legra þegar þetta er svona jafnt. Við verðum að halda áfram því þeir eru að spila vel. Við verðum að halda áfram að vinna,“ sagði Gunn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert