Mbappé á leið í aðgerð

Kylian Mbappé skellur harkalega á Kevin Danso undir lok leiksins …
Kylian Mbappé skellur harkalega á Kevin Danso undir lok leiksins við Austurríki og nefið brotnaði. AFP/Kenzo Tribouillard

Kylian Mbappé, stórstjarna franska landsliðsins í knattspyrnu, nefbrotnaði í leiknum við Austurríki í kvöld.

Þetta staðfesti franska knattspyrnusambandið eftir leikinn og skýrði um leið frá því að hann myndi gangast undir aðgerð í Düsseldorf vegna nefbrotsins. Hann var fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl strax eftir leikinn.

Ekki hefur verið staðfest hvort Mbappé geti spilað næsta leik Frakka, sem er gegn Hollendingum á föstudagskvöldið, en hann myndi þá væntanlega leika með sérhannaða grímu til að hlífa nefinu.

Atvikið átti sér stað undir lok leiksins þegar Mbappé og varnarmaður Austurríkis rákust saman. 

Kylian Mbappé heldur um nefið eftir atvikið í kvöld.
Kylian Mbappé heldur um nefið eftir atvikið í kvöld. AFP/Ozan Kose
mbl.is

LEIKIR Í DAG - 27. JÚNÍ

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 27. JÚNÍ

Útsláttarkeppnin