Roman Yaremchuk var að vonum ánægður eftir að hann tryggði Úkraínu mikilvægan 2:1-sigur á Slóvakíu í E-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu í Düsseldorf í dag.
Yaremchuk átti erfitt með sig í leikslok og grét gleðitárum.
Sigurmarkið kom á 80. mínútu og þýðir að Úkraína á fína möguleika á því að komast í 16-liða úrslit Evrópumótsins.
Myndasyrpu af tilfinningaríkum Yaremchuk má sjá hér: