Sviss sló Ítalíu úr keppni á Evrópumótinu í fótbolta í Berlín í dag með 2:0 sigri. Myndband af mörkum Sviss má sjá í fréttinni.
Remo Freuler kom Sviss yfir á 37. mínútu og Ruben Vargas skoraði glæsilegt mark strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks en mörkin má sjá hér að neðan.
Sviss mætir sigurvegaranum úr viðureign Englands og Slóvakíu sem fram fer á morgun.
Allt það helsta úr leik Sviss gegn Ítalíu í 16 liða úrslitum í dag. Tvö mörk litu dagsins ljós hjá Svisslendingum en boltinn fór tvisvar í stöng þeirra rauðklæddu 🇨🇭 pic.twitter.com/CCqBJcJu4j
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) June 29, 2024