Vandræði Englendinga með vinstri bakvarðarstöðu liðsins halda áfram en Kieran Trippier er meiddur.
Trippier er réttfættur hægri bakvörður en hefur spilað vinstramegin á meðan að Luke Shaw jafnar sig á meiðslum sem hann varð fyrir í febrúar.
Trippier æfði með enska liðinu í dag en er tæpur í kálfanum og getur líklegast ekki verið í byrjunarliði á morgun þegar England mætir Slóvakíu.
Ezri Konsa, réttfættur miðvörður, er mögulega að fara að leysa stöðuna í fjarveru þeirra.