Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo hefur aldrei skorað úr aukaspyrnu á Evrópumótinu í fótbolta.
Ronaldo tók fjórar aukaspyrnur og skaut fram hjá markinu í þeim öllum í sigri Portúgals á Slóveníu í vítakeppni á EM í Þýskalandi í kvöld.
Ronaldo hefur alls tekið 33 aukaspyrnur á EM og aldrei tekist að skora. Þá hefur hann tekið alls 60 aukaspyrnur á stórmótum og aðeins skorað úr einni, gegn Spáni á HM 2018.
Ronaldo og Portúgal mæta Frakklandi í átta liða úrslitum mótsins næsta föstudag.