Frakkland er komið í átta liða úrslit Evrópumóts karla í knattspyrnu eftir sigur á Belgíu, 1:0, í Düsseldorf í Þýskalandi í dag.
Frakkar mæta Portúgal eða Slóveníu í átta liða úrslitunum en þau mættast í kvöld.
Leikurinn var frekar bragðdaufur en Frakkar sóttu meira. Belgar fengu hins vegar góð færi.
Kevin De Bruyne fékk draumaskot á 83. mínútu rétt utan teigs eftir góðan undirbúning Jérémy Doku. Aftur á móti varði Mike Maginan vel frá Belganum.
Sigurmark Frakka kom tveimur mínútum seinna en þá fór skot Randal Kolo Muani af reynsluboltanum Jan Vertongen og í netið. Var þetta sjálfsmark.
Leikur Frakka gegn Portúgal eða Slóveníu fer fram næsta föstudag.