Belgíska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur ekki fagnað góðum árangri á síðustu tveimur stórmótum en Belgar eru farnir heim af EM í Þýskalandi eftir tap fyrir Frökkum, 1:0, í Düsseldorf í dag.
Sigurmark Frakka var sjálfsmark Jan Vertongen en Belgar skoruðu aðeins tvö mörk í fjórum leikjum á Evrópumótinu.
Það sem verra er fyrir Belgíu er að liðið hefur aðeins skorað þrjú mörk í síðustu sjö leikjum liðsins á stórmóti.
Á HM í Katar veturinn 2022 skoraði Belgía aðeins gegn Kanada í fyrsta leik liðsins. Síðan þá hefur liðið spilað sex leiki á stórmóti og skorað í aðeins einum þeirra, sigri gegn Rúmeníu, 2:0.
Ekki vantar upp á gæði í sókn Belga en þeir eru með einn besta miðjumann heims í Kevin De Bruyne.
Þá er Romelu Lukaku frammi hjá liðinu og kantmenn eins og Jérémy Doku, Leandro Trossard, Lois Openda, Johan Bakayoko og Yannick Carrasco í liðinu.