Portúgalinn Cristiano Ronaldo klúðraði víti í framlengingu gegn Slóveníu í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta í Frankfurt í Þýskalandi í kvöld.
Ronaldo gat komið Portúgal í 1:0 úr vítinu en Jan Oblak varði meistaralega frá honum.
Ronaldo var alveg í molum eftir vítaklúðrið en staðan er enn markalaus þegar örfáar mínútur eru eftir af leiknum.