Spænski knattspyrnumaðurinn Lamine Yamal, yngsti markaskorari í sögu Evrópukeppni karla í knattspyrnu, vakti heilmikla athygli á nýafstöðnu Evrópumóti sem fór fram í Þýskalandi.
Yamal, sem fagnaði 17 ára afmæli sínu daginn fyrir úrslitaleik Spánar og Englands, þar sem Spánn bar sigur af hólmi eftir æsispennandi leik, fangaði hugi og hjörtu fólks um allan heim þegar hann sást fagna sigrinum ásamt kornungum bróður sínum, Keyne, á Ólympíuleikvangnum í Berlín á sunnudag.
Keyne, með snuddu og klæddur spænska landsliðsbúningnum, sat í fangi bróður síns á vellinum og handfjatlaði verðlaunagrip Yamal sem var valinn besti ungi leikmaður mótsins.
Þúsundir manna hafa líkað við ljósmynd af Yamal-bræðrunum sem deilt var á samfélagsmiðlum.
Lamine Yamal y su hermano pequeño, después de ganar la Eurocopa con 17 años, nos han robado el corazón. pic.twitter.com/mgYms0noDL
— Eva Helada #FFO (@evaspinola70) July 15, 2024