Knattspyrnumaðurinn Brandon Williams, sem er á láni hjá Ipswich Town frá Manchester United, er fyrir dómi vegna fullyrðinga um að hann hafi andað að sér hlátursgasi áður en hann lenti í bílslysi.
DailyMail greinir frá.
Williams lenti í bílslysi á síðasta ári en fram kom í dómsalnum á föstudaginn að hann hafi andað að sér hlátursgasi stuttu fyrr. Leikmaðurinn kom fyrir dómi vegna slyssins sem átti sér stað í fyrra.
Saksóknarinn Katie Johnson sagði að vitni hefðu séð til hans anda að sér hlátursgasi úr blöðru.
Var Williams veitt skilyrðislausa tryggingu en málið heldur áfram á næstu mánuðum.