„Ég var einn þeirra sem fékk pláss með boltann í dag,“ sagði Josko Gvardiol, varnarmaður Manchester City, í viðtali í Vellinum á Símanum sport er rætt var um markalaust jafntefli liðsins gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Fátt var um fína drætti en liðin vörðust vel. Varnarmenn City voru hvað mest með boltann en Arsenal hleypti miðjumönnum liðsins í fáar góðar stöður.
„Ég og Manuel Akanji erum þeir sem fengu pláss í dag. Ég er ekki vanur því að vera mikið með boltann. Ég reyndi mitt besta að keyra á leikmenn Arsenal en ég er ekki alveg þannig leikmaður,“ sagði Gvardiol meðal annars.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.