Moussa Diaby og Ezri Konsa skoruðu mörk Aston Villa í heimasigri liðsins á Wolves, 2:0, í grannaslag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
Diaby skoraði með föstu skoti utan teigs á meðan Konza skoraði með spyrnu hægra megin við teiginn. Svo virtist sem Konza ætlaði að gefa fyrir en boltinn sveif yfir José Sá í marki Wolves og í netið.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.