Frakkinn Emmanuel Petit var ekki sáttur með sóknarleik Arsenal í markalausa jafntefli liðsins gegn Manchester City í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag.
Petit, sem er fyrrverandi leikmaður Arsenal, var til viðtals í Vellinum á Símanum sport eftir stórleikinn í Manchester.
„Ég var mjög pirraður. Þó að varnarleikurinn hafi verið mjög góður var sóknarleikurinn ekki upp á marga fiska,“ sagði Petit en viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.