James Ward-Prowse skoraði eftirminnilegt sigurmark fyrir West Ham í 2:1-sigri liðsins á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Miðjumaðurinn gerði sér lítið fyrir og skoraði beint úr horni, er hann spyrndi boltanum með glæsibrag í fjærhornið.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.