Kevin De Bruyne fór á kostum í útisigri Manchester City á Crystal Palace, 4:2, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á laugardaginn var.
De Bruyne skoraði tvö mörk og lagði annað upp. Tómas Þór Þórðarson fékk þá Gylfa Einarsson og Bjarna Þór Viðarsson í Völlinn á Símanum Sport í gær.
Þar ræddu félagarnir meðal annars um Kevin De Bruyne.
„Þeir eru svolítið tæpir varnarlega en komast upp með það því þeir eru með eitt stykki Kevin De Bruyne í liðinu,“ sagði Gylfi en umræðuna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.