„Það virðist vera gífurleg stemning í varnarleiknum hjá Arsenal,“ sagði Bjarni Þór Viðarsson í Vellinum á Símanum Sport í gær.
Bjarni var gestur Tómasar Þórs Þórðarsonar ásamt Gylfa Einarssyni en meðal umræðuefna var Arsenal, sem vann Brighton 3:0 á laugardaginn var.
„Þeir geta spilað hvaða varnarleik sem er, og hann er búinn að vera stórkostlegur, sérstaklega árið 2024,“ sagði Bjarni meðal annars en umræðuna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.