Brasilíski knattspyrnumaðurinn Rodrigo Muniz, táraðist þegar að Andreas Pereira og Willian Borges, liðsfélagar hans í Fulham afhentu honum verðlaun en hann var leikmaður marsmánaðar í ensku úrvalsdeildinni.
Rodrigo hélt að hann væri að fara í viðtal til að tala um leik Fulham gegn West Ham á sunnudaginn en liðsfélagar hans komu honum á óvart í miðju viðtali.
„Ég er að fara að gráta,“ sagði hrærður Rodrigo og þurrkaði tárin en Willian þekkir liðsfélaga sinn vel og sagðist hafa spáð því að hann færi að gráta.
Rodrigo thought this was a normal pre-match interview...
— Fulham Football Club (@FulhamFC) April 12, 2024
But @andrinhopereira and @willianborges88 had a surprise. 🏆 pic.twitter.com/J6aVbRR8eM