Andreas Pereira skoraði bæði mörk Fulham í Lundúnarslag gegn West Ham. Mörkin eru í spilaranum.
Pereira lék á Lukasz Fabianski og lagði boltann í autt markið eftir misheppnaða hreinsun Grikkjans Konstantinos Mavropanos eftir 9 mínútna leik.
Það var síðan Alex Iwobi sem lagði upp síðara mark Pereira með góðum spretti upp hægri vænginn og vel tímasettri fyrirgjöf.