Það tók íslenska landsliðsmanninn, Jóhann Berg Guðmundsson, aðeins nokkrar sekúndur að skora eftir að hann kom inn á sem varamaður í leik Burnley gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Jóhann kom inn á á 70. mínútu og á 71. mínútu skoraði hann fjórða mark Burnley í sigri liðsins á Sheffield á útivelli.
Jóhann hefur lagt upp tvö mörk á tímabilinu en þetta var það fyrsta sem hann skorar.
Mynbandið í spilaranum hér fyrir ofan sýnir Jóhann skokka inn á völlinn, hlaupa beint inn í vítateig, fá boltann og skora. Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.