Jóhann Berg Guðmundsson og liðsfélagar hans í Burnley heimsækja Sheffield United í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Fer leikurinn fram á Bramall Lane í Sheffield og verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 14.
Útsendingin hefst klukkan 13.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 14.
Sheffield United er í 20. sæti deildarinnar með 16 stig en Burnley er í 19. sætinu með 20 stig.
Smelltu hér til þess að horfa á leik Sheffield United og Burnley í beinni útsendingu á mbl.is.