Mörk Everton voru glæsileg í mikilvægum sigri liðsins á Nottingham Forest í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í Liverpool í dag.
Everton vann leikinn 2:0 en Idrissa Gana Gueye og Dwight McNeil skoruðu mörk liðsins, bæði tvö stöngin inn.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.