Newcastle er aðeins stigi á eftir Manchester United í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir stórsigur á Sheffield United í dag, 5:1.
Anel Ahmedhodzic kom þó Sheffield United yfir í byrjun leiks, Alexander Isak jafnaði fyrir hlé, 1:1, og í sínni hálfleik skoruðu Bruno Guimaraes, Isak úr vítaspyrnu og Callum Wilson, auk sjálfsmarks.
Sheffield United er þar með fallið úr deildinni.
Mörkin sex má sjá í myndskeiðinu en mbl.is birtir efni úr enska fótboltanum í samvinnu við Símann Sport.