Egypski knattspyrnumaðurinn Mo Salah var ekki í góðu skapi er hann og liðsfélagar hans í Liverpool mættu West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Salah byrjaði á bekknum og reifst við knattspyrnustjórann Jürgen Klopp þegar hann var á leiðinni inn á sem varamaður undir lokin.
Eftir leik gekk Salah í gegnum fjölmiðlarými, hafnaði viðtölum og sagði einfaldlega: „Ef ég tjái mig breiðist út eldur.“
Salah hefur náð einstaklega góðum árangri hjá Liverpool undir stjórn Klopp, en eitthvað ósætti virðist vera á lokametrum samstarfs þeirra.