Stuðningsmaður enska knattspyrnufélagsins Burnley hefur verið ákærður fyrir níðsöngva um München-flugslysið er liðið heimsótti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Myndband af stuðningsmanninum, þar sem mátti sjá hann gera grín að slysinu, fór í dreifingu á samfélagsmiðla.
München-flugslysið varð þann 6. febrúar árið 1958. Í því létust átta leikmenn Manchester United og alls 23 manns.
Ný lög tóku gildi í ágúst á síðasta ári, en samkvæmt þeim er tekið harðar á söngvum um harmleiki á knattspyrnuvöllum.
Stuðningsmaðurinn, sem er á fimmtugsaldri, gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist, sekt og bann frá knattspyrnuvöllum.