Manchester City vann Nottingham Forest á City Ground í Nottingham í dag. Kevin De Bruyne lagði upp bæði mörk City.
Josko Gvardiol og Erling Haaland sáu um markaskorun Manchester City í dag og er City einungis stigi á eftir Arsenal eftir leiki dagsins. City á leik til góða á Arsenal.
Sjáðu mörkin í spilaranum.