Bournemouth vann öruggan sigur á Brighton, 3:0, þegar liðin tvö af suðurströnd Englands mættust í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag í Bournemouth.
Bournemouth fór þar með upp fyrir Wolves og í 10. sæti deildarinnar með 48 stig, jafnmörg og Chelsea í níunda sætinu. Brighton er áfram í tólfta sæti með 44 stig og hefur þurft að bíða lengi eftir sigri.
Marcos Senesi kom Bournemouth yfir á 13. mínútu og Enes Unal bætti við marki á 52. mínútu. Það var síðan Justin Kluivert sem rak smiðshöggið á sigurinn með marki á 87. mínútu, 3:0.