Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay meiddist á hné undir lok leiks Manchester United og Burnley í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn.
Óttast var að meiðslin væru alvarleg og Skotinn myndi í það minnsta missa af þeim leikjum sem United á eftir á þessu tímabili.
McTominay greindi hins vegar frá því á Instagram að hann yrði ekki lengi frá keppni. „Ég rann og datt asnalega á hnéð, svipað og gerðist gegn Chelsea. Þetta er ekkert alvarlegt, en ég var reiður og í uppnámi og hélt að þetta hefði farið verr. Ég vonast til að vera kominn aftur inn á völlinn mjög fljótlega,“ skrifaði McTominay.
Óvíst er þó hvort hann nái næsta leik sem er gegn Crystal Palace á mánudaginn kemur.
🙏❤️#MUFC https://t.co/bhjaRO77k2 pic.twitter.com/OXi4ayYfcl
— Manchester United (@ManUtd) April 30, 2024