Arsenal vann 3:0 sigur á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og er nú á toppi deildarinnar.
Bukayo Saka skoraði fyrsta mark leiksins eftir vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Leandro Trossard skoraði annað mark liðsins sem Declan Rice lagði upp og Rice skoraði svo sjálfur þriðja mark leiksins.
Mörkin og helstu atvik leiksins má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.