Nicolas Jackson skoraði sigurmark Chelsea þegar liðið lagði Nottingham Forest að velli, 3:2, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í kvöld.
Sigurmarkið skoraði Jackson átta mínútum fyrir leikslok og ærðist af fögnuði er hann hljóp upp í áhorfendastúkunni á City Ground í Nottingham.
Mykhailo Mudryk og Raheem Sterling komust einnig á blað hjá Chelsea.
Mörk Forest skoruðu Willy Boly og uppaldi Chelsea-maðurinn Callum Hudson-Odoi.
Mörkin fimm má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.