Bryan Mbeumo og Yoane Wissa lögðu upp mark fyrir hvorn annan þegar lið þeirra Brentford lagði Bournemouth, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í dag.
Mbeumo skoraði fyrsta mark leiksins á 86. mínútu áður en Dominic Solanke jafnaði metin fyrir Bournemouth með góðu skallamarki þremur mínútum síðar.
Wissa skoraði svo laglegt sigurmark á fimmtu mínútu uppbótartíma.
Mörkin þrjú má sjá í spilaranum hér að ofan.