Manchester City hefur ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum gegn Tottenham Hotspur á samnefndum leikvangi síðarnefnda liðsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Man. City heimsækir heimamenn á Tottenham Hotspur-leikvanginn í kvöld og freistar þess að vinna sinn fyrsta leik þar, skora sitt fyrsta mark og ná um leið toppsætinu í deildinni.
Í þeim fjórum leikjum sem Man. City hefur spilað á vellinum hefur liðið tapað þeim öllum, ekki tekist að skora eitt einasta mark og fengið á sig átta mörk.
Er það þrátt fyrir að Man. City hafi átt 74 skot í leikjunum fjórum með vænt mörk (e. xG) upp á 7,43.