Alisson markvörður Liverpool átti eina af vörslum vikunnar á ögurstundu er Liverpool gerði jafntefli við Aston Villa, 3:3, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi.
Varði hann á lokamínútunum frá Moussa Diaby og í raun tryggði Liverpool stigið.
Varsla Alisson og fleiri má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.