Kieran McKenna, knattspyrnustjóri Ipswich Town, hefur verið valinn þjálfari ársins af samtökum þjálfara í ensku deildakeppninni. McKenna skaut þar með Pep Guardiola og Mikel Arteta ref fyrir rass.
Hinn 38 ára gamli McKenna tókst að koma Ipswich upp í úrvalsdeildina en liðið hafnaði í öðru sæti B-deildarinnar, stigi á eftir Leicester City, en þetta er annað árið í röð sem Ipswich fer upp um deild.
McKenna var áður aðalliðsþjálfari í teymi Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United en Sir Alex Ferguson afhenti honum verðlaunin.
„Þessi verðlaun marka eina stoltustu stund ævi minnar. Að verða knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni og mæta frábærum þjálfurum verður áskorun sem ég get ekki beðið eftir“.
Aðrir tilnefndir voru Arteta, Guardiola, Unai Emery, Sean Dyche og John Mousinho knattspyrnustjóri Portsmouth.