Enska knattspyrnufélagið Chelsea og Ítalinn Enzo Maresca hafa komist að samkomulagi um fimm ára samning og mun hann taka við karlaliði félagsins af Mauricio Pochettino.
Maresca vann B-deildina með Leicester City á leiktíðinni og kom liðinu upp í úrvalsdeildina. Hann var í þjálfarateymi Pep Guardiola hjá Manchester City.
Sky Sports greinir frá að Chelsea þurfi að greiða Leicester um 10 milljónir punda til að fá að ráða ítalska stjórann.
Chelsea hafnaði í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Þrátt fyrir góðan endasprett ákváðu forráðamenn félagsins að losa sig við Pochettino eftir leiktíðina.