Chelsea hefur tilkynnt um ráðningu Ítalans Enzo Maresca sem knattspyrnustjóra enska félagsins. Maresca kemur til liðsins frá Leicester City en undir hans stjórn vann Leicester B-deildina á liðnu tímabili.
Hinn 44 ára gamli Maresca var aðstoðarþjálfari hjá Manchester City áður en hann tók við sem aðalþjálfari Parma á Ítalíu. Þaðan fór hann til Leicester City. Maresca var leikmaður Sevilla, Juventus og West Bromwich Albion meðal annars á löngum leikmannaferli.
Chelsea hafnaði í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu og var Mauricio Pochettino látinn fara sem knattspyrnustjóri eftir að deildinni lauk.
Welcome to Chelsea, Enzo Maresca! 👊#WelcomeEnzo pic.twitter.com/ZKfuXKQdGD
— Chelsea FC (@ChelseaFC) June 3, 2024