Leicester City hefur gefið út yfirlýsingu í kjölfar þess að Enzo Maresca yfirgefur félagið og tekur við Chelsea. Félagið lýsir yfir vonbrigðum með ákvörðun Maresca.
Leicester vann B-deildina í Englandi á tímabilinu undir stjórn Maresca en þarf að sjá á eftir Ítalanum til Chelsea. Sex þjálfarar úr þjálfarateymi Leicester fara með Maresca til Lundúna.
„Miðað við stoðirnar sem lagðar voru á eina tímabili hans hjá Leicester lýsir félagið yfir vonbrigðum með ákvörðun Enzo að vilja ekki halda áfram störfum“.
Jafnframt er tekið fram að leit sé hafin af eftirmanni Maresca.