Í læknisskoðun hjá Chelsea

Tosin Adarabioyo er að skipta yfir til Chelsea frá Fulham.
Tosin Adarabioyo er að skipta yfir til Chelsea frá Fulham. Ljósmynd/Fulham

Enski knattspyrnumaðurinn Tosin Adarabioyo fer í læknisskoðun hjá Chelsea í dag en hann er að skipta yfir til félagsins frá Fulham.

Samningur hans við Fulham rennur út um mánaðarmótin og fær Chelsea því varnarmanninn á frjálsri sölu. Newcastle hafði einnig áhuga á leikmanninum en Chelsea er að hafa betur í kapphlaupinu.

Hinn 26 ára Adarabioyo hefur leikið með Fulham frá árinu 2020, alls 119 deildarleiki og skorað í þeim fimm mörk.

Hann er uppalinn hjá Manchester City og lék ungur að árum nokkra bikarleiki með Manchester-liðinu. Hann hefur einnig leikið með West Brom og Blackburn.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert