Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur staðfest kaup sín á varnarmanninum Tosin Adarabioyo.
Tosin kemur til Chelsea frá Fulham á frjálsri sölu en hann verður formlega leikmaður liðsins þegar samningur hans rennur út hjá Fulham í lok júní.
Tosin er fyrsti leikmaðurinn sem nýi þjálfari liðsins Enzo Maresca fær til liðsins.
Varnarmaðurinn spilaði 20 leiki fyrir Fulham í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann hefur verið þar síðan 2020. Þá ólst hann upp hjá Manchester City.