Chelsea vill losna við Lukaku

Romelu Lukaku.
Romelu Lukaku. AFP

Enska knattspyrnufélagið Chelsea vill losna við belgíska framherjann Romelu Lukaku í sumar. Liðið hefur engan áhuga á því að lána Lukaku og vill fá 38 milljónir punda fyrir hann.

Napoli er eitt af liðunum sem hefur áhuga á honum en nýráðinn stjóri liðsins, Antonio Conte, hefur unnið með Lukaku hjá Inter Milan. Ekki er víst að Napoli hafi efni á honum nema þeir selji framherja sinn Victor Osimhen.  

Chelsea mun leita til Sádi Arabíu og víðsvegar í Evrópu ef Napoli mun ekki bjóða 38 milljónir punda fyrir Belgann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert