Enn einn Portúgalinn til Wolves

Úlfarnir bæta við sig efnilegum kantmanni.
Úlfarnir bæta við sig efnilegum kantmanni. AFP/Justin Tallis

Portúgalski knattspyrnumaðurinn Rodrigo Gomes verður leikmaður enska félagsins Wolves á næstu dögum. 

Enskir miðlar greina frá en Gomes er 20 ára gamall kantmaður sem kemur frá Braga í heimalandinu. 

Wolves mun greiða 12,7 milljónir punda fyrir leikmanninn sem mun skrifa undir fimm ára samning. 

Gomes er enn einn Portúgalinn sem Wolves fær til sín á síðustu árum en félagið er með sterk tengsl við landið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert