Knattspyrnumaðurinn Philippe Coutinho er án félags eftir að samningi hans við enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa var rift.
Coutinho er með mörg stórlið á ferilskránni en hann hefur spilað með Liverpool, Bayern München, Inter Mílanó og Barcelona. Auk þess á hann 68 landsleiki fyrir brasilíska landsliðið og í þeim skorað 21 mark.
Hann kom fyrst til Aston Villa í janúar árið 2022, á láni frá Barcelona, og gekk vel og félagið keypti hann í júlí sama ár. Þá hægðist töluvert á honum og hann var sendur á lán í september 2023 til Al-Duhail í Katar.
Samkvæmt hinum áreiðanlega Fabrizio Romano er brasilíska félagi Vasco da Gama, sem Coutonho spilaði fyrir á yngri árum, að reyna að fá hann til baka.