Chelsea hefur sett sig í samband við Crystal Palace vegna áhuga félagsins á franska knattspyrnumanninum Michael Olise.
Olise lét ljós sitt skína á síðustu leiktíð með Crystal Palace, og sérstaklega undir lok tímabils.
Nokkur félög eru á eftir leikmanninum, þar á meðal Manchester United, en hann er einnig ofarlega á lista Chelsea.
Það er klásúla í samningi Michael Olise sem leyfir honum að ræða við önnur félög fyrir ákveðna upphæð.
Chelsea leitar nú svara í tengslum við þá upphæð samkvæmt félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano.