Knattspyrnumaðurinn Adam Lallana, fyrrum leikmaður Liverpool og Brighton & Hove Albion snýr aftur til uppeldisfélagsins Southampton.
Lallana spilaði 265 leiki með Southampton áður en hann skipti yfir í Liverpool árið 2014 þar sem hann spilaði 178 leiki, vann Meistaradeild Evrópu og varð enskur deildar- og bikarmeistari. Hann kom til Brighton árið 2020 og spilaði 104 leiki með félaginu.
Hann skrifar undir eins árs samning en Southampton tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir árs fjarveru en liðið vann Leeds, 1:0 í úrslitaleik umspilsins á Wembley.
"I knew straightaway it just felt right." 🏡
— Southampton FC (@SouthamptonFC) June 14, 2024
Watch the full first interview with @officialAL20 on the official #SaintsFC app 📲